Magnaðar myndir af gosinu.

Stal þessum tengli af bloggi Haraldar Sigurðssonar forstöðumanni eldfjallasafnsins í Stykkishólmi.    

Hér eru einhverjar flottustu myndir sem sést hafa af eldgosinu í Eyjafjallajökli.    Greinilegt er að ljósmyndarinn hefur haft mikið fyrir því að ná þessum frábæru myndum.

Myndirnar má sjá hér: http://www.mrietze.com/iceland10-2.htm


Windows skráarnöfn undir Linux.

Ég hef lent í því oftar en einu sinni að fokka illilega upp skráarnöfnum með skrám sem innihalda íslenska stafi þegar þeir hafa verið fluttir af Windows yfir á Linux og öfugt.

Í kvöld sat ég uppi með 7 GB af windows skrám sem búið var að skíra með íslenskum stöfum og engin leið að flytja þetta yfir á disk með nothæfum hætti úr Ubuntu (sem notar UTF8 stafasettið á meðan Windows notar CP850.

Eftir mikið grufl á netinu rakst ég á forrit sem heitir “convmv” og er hægt að sækja með “apt-get install convmv” á ubuntu.

Með því að gefa eftirfarandi skipun:

convmv -f cp850 -t utf8 * -r

fer stýrikerfið yfir allar skrár og varpar þeim yfir á rétt stafasett. Ef þú sérð að “heiti” skránna eru rétt sem koma úr listanum getur þú keyrt skipunina aftur og bætt við “–notest” aftan við og þá “framkvæmir” hún aðgerðina.

convmv -f cp850 -t utf8 * -r –notest

Er ekki frá því að þetta hafi sparað mér ófáar klukkustundir í að endurnefna þessi gígabæti :p


Best að “halda að sér höndum” í kreppunni

Í ljós kemur skv. könnun sem minnst er á hér (http://www.livescience.com/culture/090116-touch-buy.html) þá er fólk líklegra til að kaupa hluti ef það hefur snert þá, eða amk tilbúið að borga hærra verð. Hefur víst eitthvað með eignartilfinningu að gera, best að halda að sér höndunum og skoða bara í gegnum glerið.


Ert þú í vandræðum með að opna nýjustu Word, Excel og PowerPoint skjölin?

Ef þú ert að lenda í vandræðum með að geta opnað nýjustu útgáfur af skjölum skrifuðum í Microsoft Word, Microsoft Excel og Microsoft Powerpoint af því þú ert með eldri útgáfu af hugbúnaðinum, þá er hægt að sækja “breyti” frá Microsoft sem opnar nýjustu skjölin í eldri útgáfum af Office vöndlinum.

Hér er hægt að nálgast þessa viðbót: http://www.microsoft.com/downloads/details.aspx?FamilyID=941b3470-3ae9-4aee-8f43-c6bb74cd1466&displaylang=en


Að rífa sig upp úr neikvæðninni!

Ég er alltaf að reka mig á það þessa dagana að hugurinn hneigist í átt að neikvæðninni. Kanski ekki skrýtið eftir alla umræðuna um hrunið, IceSave og þá óáran sem gengur yfir þjóðina. Það versta við svona “slump” er að það getur verið erfiðara en tárum taki að ná sér upp úr þessu aftur, því það er eins og maður grafi sig dýpra og dýpra eftir því sem meiri “ófögnuður” hellist yfir mann.

Alveg eins og umræðan í þjóðfélaginu getur sett mann niður, getur umræða á jákvæðum nótum komið manni upp aftur.

Ég er t.d. alltaf hrifinn af tilvitnun í Theodore Roosevelt forseta Bandaríkjanna sem er á þá leið, þýdd og staðfærð.

“Gerðu það sem þú getur, með það sem þú hefur, þar sem þú ert”.

Svo ef þetta dugar ekki til, getur maður alltaf hrifist af því hvernig fólk sem hefur það miklu “verra” en maður sjálfur, fer að því að halda gleðinni og jákvæðninni.

Einn af þeim er “Nick Vujicic” sem fæddist handa- og fótalaus, en lætur það ekki aftra sér. Hann er trúaður og lætur það hjálpa sér í daglegu amstri en í raun og veru skiptir meðalið ekki máli, heldur tilgangurinn.

Hér má sjá myndskeið af YouTube um piltinn, þau eru nokkur þar, og það er ómögulegt annað en að hrífast með honum.

Eigið þið svo góðan dag og njótið góða veðursins!


« Older | Newer »