Menntastoðir fjarnám
Um námið
Menntastoðir er vinsæl námsbraut sem hefur veitt fjölda fólks ný tækifæri í námi. Nemendur eru mjög vel undirbúnir fyrir áframhaldandi nám. Þeir sem ljúka námi í Menntastoðum með tilskildum árangri geta sótt um í undirbúningsdeildir háskólanna, það er Keili, HR, Bifröst eða iðn- og tækninám. Hægt er að meta námið til framhaldsskólaeininga. Námið er niðurgreitt af Fræðslusjóði og kennt samkvæmt námskrá vottaðri af Menntamálastofnun.
Fjarnám
Námið samanstendur af sex sjö vikna lotum og eru kenndar tvær námsgreinar í hverri lotu ásamt námstækni.
Nemendur ljúka námi á tveimur önnum. Lokapróf (stærðfræði, íslenska, enska) eru tekin í Mími eða á öðrum stað sem samið er um við verkefnastjóra.
Uppbygging náms
Kenndar eru tvær námsgreinar í einu, samhliða námstækni. Námið spannar 2 annir. Útskrift er á vorönn 2025.
Námsgreinar
Smellið á námsgreinar til að fá nánari upplýsingar.
- Íslenska 15 og 25
- Stærðfræði 15, 25 og 35
- Enska 25 og 35
- Danska 15
- Námstækni
- Tölvu –og upplýsingatækni
- Lokaverkefni
- Yndislestur (enska, íslenska)