Posts Tagged “Stjórnmál”

Þessa dagana keppast spunameistarar að finna nýtt nafn á ríkisstjórnina, “Norræna stjórnin” af því fyrsti fundurinn var í Norræna húsinu hefur komið fram sem tillaga, “Gnitanesstjórnin” af því hún var soðin saman í valdaráninu í nóvember heima hjá Lúðvík Bergvinssyni.

Ég ætla að gefa þessari stjórn nafnið “Ráðalausa stjórnin”, þar sem hún hefur ekki gert RASSGAT af því sem hún lofaði á þeim stutta tíma sem þeim var gefið fram að kosningum. Nú nema að nauðga í gegn óskyldum málum eins og vændisfrumvarpinu og reynt að lama atvinnuvegi Íslendinga með ummælum um álver og Drekasvæðið.

Skjaldborgin sem slá átti um heimilin reyndist tjaldborg, sem hvorki heldur vatni né vindum, fyrirtæki fara á hausinn sem aldrei fyrr og blesarnir sem þjóðin kaus á þing segist hafa “nægan tíma” til að sjóða saman nýja stjórn.

Iðjulausa stjórnin væri líka við hæfi, eða “rólega stjórnin”. Held að öll þessi nöfn séu góð og gild á hana.

Comments Engar athugasemdir »

Málþóf Sjálfstæðismanna aðför að lýðræðinu?

Mér finnst það svo fyndið að þegar að vinstri menn beittu málþófi á þingi var það kallað lýðræðisleg vinnubrögð og skylda stjórnarandstöðu að halda uppi gagnvörnum fyrir þau mál sem ríkisstjórnin ætlaði að keyra í gegnum þingið.

Nú þegar sjallarnir beita sömu aðferðum í máli sem þeir eru ekki sáttir við, heitir þetta “að gefa lýðræðinu langt nef”, “ömurlegar niðurstöður” og öðrum ónefnum.

Mér finnst málflutningur VG varðandi málþóf sjálfstæðismanna vera þeim sjálfum til skammar enda hafa þeir mest beitt málþófi á þingi allra flokka.┬á┬á┬á┬á Nú þegar þeir verða fyrir eigin meðulum er þetta ömurlegt, asnaskapur og guð má vita hvað.

Burtséð frá því þá hefðu Sjallarnir mátt skammast til að leggja málinu lið, enda þjóðþrifamál að fara að fá nýja stjórnarskrá í þetta bananalýðveldi.┬á┬á┬á Var búin að ákveða að kjósa þá ekki í kosningunum, en ætla nú ALLS ekki að kjósa þá í kosningum.

Eftir sem áður er lýðræði lýðræði og málþóf er málþóf hvort sem menn eru i stjórn eða stjórnarandstöðu.┬á┬á┬á Þetta er réttur stjórnarandstæðinga.┬á┬á┬á┬á Held að VG ættu að drattast til að ákveða hvort málþóf er aðför að lýðræði eða lýðræðisleg vinnubrögð, þýðir ekkert að skipta um skoðun eftir því hvort menn eru í stjórn eða stjórnarandstöðu.

Comments Ein athugasemd »

Æ hvað ég er eitthvað sammála Jónasi H. Haralz. Mér hefur alltaf fundist þjóðin vera hálfpartinn enn í torfkofunum, nagandi gömul handrit á meðan aðrar þjóðir hafa búið við andlegra frelsi. Hluti af þessu er hið eilífa karp um kosti og galla þess að ganga í Evrópusambandið.
Það sem hægt er að ganga í, hlýtur að vera hægt að segja sig úr. Því segi ég! “Aðildarumsókn ekki seinna en strax!”.

Þröngsýni Íslendinga tefur fyrir viðreisn

þjóðin?

Comments Engar athugasemdir »

Áskotnaðist þessar myndir í tölvupósti í dag. ┬á Gat ekki annað en dáðst að þessum tvíförum sem eiga sameiginlegt að hafa stolið jólunum. ┬á ┬áÞú fyrirgefur Geir, ég veit það er ljótt að persónugera viðfangsefnin, en það er bara svo margt “líkt” með þessum kauðum.

Comments 2 Athugasemdir »

Þær hafa verið vinsælar, samsæriskenningarnar í kringum 9.11 atburðinn í New York. Endalausar umræður, lygaþvæla og þvættingur hefur verið birt og sjálfskipaðir sérfræðingar í öllu mögulegu sem viðkemur flugvélum, byggingarverkfræði og eldsvoðum hafa komið fram á sjónarsviðið (hver man ekki eftir Gúmmívinnustofubrunanum á höfðanum hér um árið þegar allir voru orðnir sérfræðingar í eldsvoðum í sjónvarpinu).

Vinsælustu viðfangsefnin eru að flugvélaeldsneyti geti ekki brætt stál og því hljóti turnarnir að hafa verið sprengdir niður með thermite, af hverju hrundi WTC7 sem ekkert varð fyrir árásunum osfrv.

Í bloggi Þryms Sveinssonar á mbl.is í kjölfar yfirlýsinga einhvers klerksins væru Sameinuðu Þjóðirnar nú orðnir óvinir íslam, af því tilefni vísaði einn bloggarinn á eftirfarandi grein.

http://www.popularmechanics.com/technology/military_law/1227842.html?page=9

Þarna eru tilgáturnar teknar fyrir ein af annari og gefin á þeim rökréttari skýringar, segi rökréttari því þær hljóma amk betur í mín eyru en fyrirhöfnin sem hafa hefði þurft fyrir því að framkvæma þennan verknað af einni ríkisstjórn. Yfirhylmingin sjálf hefði þurft að vera svo stórkostleg að það jaðrar við ævintýri.

Minni bara á hið fornkveðna. Yfirleitt er einfaldasta skýringin sú sennilegasta.

Comments Engar athugasemdir »