Ég spyr… “hvað kostar hálfur líter af blávatni?”┬á┬á┬á Ástæðan er að ég þurfti að kíkja í Essó í Fossvoginum áðan og ákvað að fá mér eitthvað að drekka.
Í rekkanum var til sölu 1/2 líter af kók fyrir 190 krónur og rauður kristall plús á 219 krónur.
Nú spyr ég… hvaðan er verðlagningin á þessu ættuð?┬á┬á Skítt og lago með hvað er heimskulegt að kaupa vatn á flösku þegar þetta er frítt í krananum, en mér er gersamlega óskiljanlegt hvernig að tappa blávatni á flösku, bæta við smá kolsýru og vítamínum getur hækkað verðið úr 0 krónum í 219 krónur.
Við getum líka gefið okkur að Ölgerðin og Vífilfell þurfi að borga meira fyrir vatnið en við hin þar sem um fyrirtæki er að ræða og þau þurfa að greiða vatnsgjald og hugsanlega má finna einhvern viðbótarkostnað eins og flöskur (já innfluttar) og dreifingu.
En hvernig er hægt að VOGA sér að rukka 219 krónur fyrir hálfa líterinn?
Í landinu er kreppa, verið er að reyna að halda innflutningi í lágmarki og spara gjaldeyri.┬á┬á┬á Verið er að reyna að halda uppi atvinnustigi í landinu og verður að gefa mönnum hrós fyrir að nýta innlendar auðlindir til framleiðslu og sölu.
En ef menn ætla að vera svo ógeðslega gráðugir að markaðssetja sig út af kortinu með verðlagningu á næstum eingöngu innlendu hráefni, þá held ég að sum fyrirtæki ættu bara að┬á hætta STRAX.
Að selja hálfan líter af blávatni á hærra verði en bensínlíter sem búið er að pumpa upp úr jörðinni hinum megin á hnettinum og flytja í hreinsunarstöðvar annarsstaðar á hnettinum og loks í geyma á Íslandi er hreint út sagt ÓGEÐFELLT.
Sennilega væri nær að selja þetta á 55 kall, og hægt að hafa hagnað af því engu að síður…┬á┬á┬á Hvernig er það ætla Vífilfell og Ölgerðin að halda áfram að okra á þessu, eða er kominn tími til að lækka verðið á þessu í eitthvað eðlilegt horf?
Amk er ég hættur að kaupa vatn á flöskum þar til verðlagningin á þessu verður heilbrigðari!

Færslur (RSS)