Í ljós kemur skv. könnun sem minnst er á hér (http://www.livescience.com/culture/090116-touch-buy.html) þá er fólk líklegra til að kaupa hluti ef það hefur snert þá, eða amk tilbúið að borga hærra verð. Hefur víst eitthvað með eignartilfinningu að gera, best að halda að sér höndunum og skoða bara í gegnum glerið.
Safn fyrir flokkinn “Almennt”
Feb
03
2010
Ert þú í vandræðum með að opna nýjustu Word, Excel og PowerPoint skjölin?Sent af: alfred í Almennt, tags: toolsEf þú ert að lenda í vandræðum með að geta opnað nýjustu útgáfur af skjölum skrifuðum í Microsoft Word, Microsoft Excel og Microsoft Powerpoint af því þú ert með eldri útgáfu af hugbúnaðinum, þá er hægt að sækja “breyti” frá Microsoft sem opnar nýjustu skjölin í eldri útgáfum af Office vöndlinum. Hér er hægt að nálgast þessa viðbót: http://www.microsoft.com/downloads/details.aspx?FamilyID=941b3470-3ae9-4aee-8f43-c6bb74cd1466&displaylang=en Ég er alltaf að reka mig á það þessa dagana að hugurinn hneigist í átt að neikvæðninni. Kanski ekki skrýtið eftir alla umræðuna um hrunið, IceSave og þá óáran sem gengur yfir þjóðina. Það versta við svona “slump” er að það getur verið erfiðara en tárum taki að ná sér upp úr þessu aftur, því það er eins og maður grafi sig dýpra og dýpra eftir því sem meiri “ófögnuður” hellist yfir mann. Alveg eins og umræðan í þjóðfélaginu getur sett mann niður, getur umræða á jákvæðum nótum komið manni upp aftur. Ég er t.d. alltaf hrifinn af tilvitnun í Theodore Roosevelt forseta Bandaríkjanna sem er á þá leið, þýdd og staðfærð. “Gerðu það sem þú getur, með það sem þú hefur, þar sem þú ert”. Svo ef þetta dugar ekki til, getur maður alltaf hrifist af því hvernig fólk sem hefur það miklu “verra” en maður sjálfur, fer að því að halda gleðinni og jákvæðninni. Einn af þeim er “Nick Vujicic” sem fæddist handa- og fótalaus, en lætur það ekki aftra sér. Hann er trúaður og lætur það hjálpa sér í daglegu amstri en í raun og veru skiptir meðalið ekki máli, heldur tilgangurinn. Hér má sjá myndskeið af YouTube um piltinn, þau eru nokkur þar, og það er ómögulegt annað en að hrífast með honum. Eigið þið svo góðan dag og njótið góða veðursins! Jæja, ég er búin að lofa sjálfum mér að eyða aðeins meiri tíma í að blogga á þessari síðu. Næstu daga ætla ég að bæta hér inn ýmsum nytsamlegum upplýsingum sem hafa reynst mér vel bæði í einkalífi og tölvumálum. Skal reyna að hafa þetta fróðlegt, skemmtilegt, jákvætt og hnitmiðað… ef eitthvað af þessu “klikkar” þá mega lesendur hnippa í mig. Ég spyr… “hvað kostar hálfur líter af blávatni?”┬á┬á┬á Ástæðan er að ég þurfti að kíkja í Essó í Fossvoginum áðan og ákvað að fá mér eitthvað að drekka. Í rekkanum var til sölu 1/2 líter af kók fyrir 190 krónur og rauður kristall plús á 219 krónur. Nú spyr ég… hvaðan er verðlagningin á þessu ættuð?┬á┬á Skítt og lago með hvað er heimskulegt að kaupa vatn á flösku þegar þetta er frítt í krananum, en mér er gersamlega óskiljanlegt hvernig að tappa blávatni á flösku, bæta við smá kolsýru og vítamínum getur hækkað verðið úr 0 krónum í 219 krónur. Við getum líka gefið okkur að Ölgerðin og Vífilfell þurfi að borga meira fyrir vatnið en við hin þar sem um fyrirtæki er að ræða og þau þurfa að greiða vatnsgjald og hugsanlega má finna einhvern viðbótarkostnað eins og flöskur (já innfluttar) og dreifingu. En hvernig er hægt að VOGA sér að rukka 219 krónur fyrir hálfa líterinn? Í landinu er kreppa, verið er að reyna að halda innflutningi í lágmarki og spara gjaldeyri.┬á┬á┬á Verið er að reyna að halda uppi atvinnustigi í landinu og verður að gefa mönnum hrós fyrir að nýta innlendar auðlindir til framleiðslu og sölu. En ef menn ætla að vera svo ógeðslega gráðugir að markaðssetja sig út af kortinu með verðlagningu á næstum eingöngu innlendu hráefni, þá held ég að sum fyrirtæki ættu bara að┬á hætta STRAX. Að selja hálfan líter af blávatni á hærra verði en bensínlíter sem búið er að pumpa upp úr jörðinni hinum megin á hnettinum og flytja í hreinsunarstöðvar annarsstaðar á hnettinum og loks í geyma á Íslandi er hreint út sagt ÓGEÐFELLT. Sennilega væri nær að selja þetta á 55 kall, og hægt að hafa hagnað af því engu að síður…┬á┬á┬á Hvernig er það ætla Vífilfell og Ölgerðin að halda áfram að okra á þessu, eða er kominn tími til að lækka verðið á þessu í eitthvað eðlilegt horf? Amk er ég hættur að kaupa vatn á flöskum þar til verðlagningin á þessu verður heilbrigðari! Var rétt í þessu að setja í gang Socialite sem er plugin fyrir Wordpress. Þetta snilldarapparat, póstar nýjum bloggum á Facebook síðuna manns og því þarf maður ekki að margtyggja sömu hlutina aftur og aftur ofan í fólk (já þið skuluð lesa þetta hvort sem þið viljið eða ekki). Hver veit nema þetta verði til að maður verði duglegri að blogga í framtíðinni! Oft hef ég látið fara í taugarnar á mér síauknar “ekki”-fréttir af hinum ýmsu stórstirnum. Botninn tók þú úr í Vísi í dag þegar yfirskriftin “Læri Knowles – myndir” birtist við “ekkifrétt” um Beyonce Knowles. Það sem botnar þessa frétt endanlega er að aðalmyndin er af kálfum Knowles, þ.e. hnén og niðurúr.┬á┬á┬á Það er auðljóst að blaðamenn á Vísi eru illa gefnir ef þeir halda að lærin séu fyrir neðan hné…. en þetta skýrir kanski “gáfnafarið” á fréttunum frá þeim almennt. Hér er svo tengill á fréttina ef einhver skyldi telja “kálfana” á Beyonce Knowles til fréttnæms efnis. http://www.visir.is/article/20090610/LIFID01/573310558
May
06
2009
Vísir – Ákærð fyrir að sparka í höfuð á skemmtistaðSent af: alfred í Almennt, tags: blaðurVísir – Ákærð fyrir að sparka í höfuð á skemmtistað. Ja hérna, hvenær fengu skemmtistaðir höfuð?┬á┬á┬á┬á┬á Hefði ekki verið nær að orða þetta öðruvísi? Þessa dagana keppast spunameistarar að finna nýtt nafn á ríkisstjórnina, “Norræna stjórnin” af því fyrsti fundurinn var í Norræna húsinu hefur komið fram sem tillaga, “Gnitanesstjórnin” af því hún var soðin saman í valdaráninu í nóvember heima hjá Lúðvík Bergvinssyni. Ég ætla að gefa þessari stjórn nafnið “Ráðalausa stjórnin”, þar sem hún hefur ekki gert RASSGAT af því sem hún lofaði á þeim stutta tíma sem þeim var gefið fram að kosningum. Nú nema að nauðga í gegn óskyldum málum eins og vændisfrumvarpinu og reynt að lama atvinnuvegi Íslendinga með ummælum um álver og Drekasvæðið. Skjaldborgin sem slá átti um heimilin reyndist tjaldborg, sem hvorki heldur vatni né vindum, fyrirtæki fara á hausinn sem aldrei fyrr og blesarnir sem þjóðin kaus á þing segist hafa “nægan tíma” til að sjóða saman nýja stjórn. Iðjulausa stjórnin væri líka við hæfi, eða “rólega stjórnin”. Held að öll þessi nöfn séu góð og gild á hana. Málþóf Sjálfstæðismanna aðför að lýðræðinu? Mér finnst það svo fyndið að þegar að vinstri menn beittu málþófi á þingi var það kallað lýðræðisleg vinnubrögð og skylda stjórnarandstöðu að halda uppi gagnvörnum fyrir þau mál sem ríkisstjórnin ætlaði að keyra í gegnum þingið. Nú þegar sjallarnir beita sömu aðferðum í máli sem þeir eru ekki sáttir við, heitir þetta “að gefa lýðræðinu langt nef”, “ömurlegar niðurstöður” og öðrum ónefnum. Mér finnst málflutningur VG varðandi málþóf sjálfstæðismanna vera þeim sjálfum til skammar enda hafa þeir mest beitt málþófi á þingi allra flokka.┬á┬á┬á┬á Nú þegar þeir verða fyrir eigin meðulum er þetta ömurlegt, asnaskapur og guð má vita hvað. Burtséð frá því þá hefðu Sjallarnir mátt skammast til að leggja málinu lið, enda þjóðþrifamál að fara að fá nýja stjórnarskrá í þetta bananalýðveldi.┬á┬á┬á Var búin að ákveða að kjósa þá ekki í kosningunum, en ætla nú ALLS ekki að kjósa þá í kosningum. Eftir sem áður er lýðræði lýðræði og málþóf er málþóf hvort sem menn eru i stjórn eða stjórnarandstöðu.┬á┬á┬á Þetta er réttur stjórnarandstæðinga.┬á┬á┬á┬á Held að VG ættu að drattast til að ákveða hvort málþóf er aðför að lýðræði eða lýðræðisleg vinnubrögð, þýðir ekkert að skipta um skoðun eftir því hvort menn eru í stjórn eða stjórnarandstöðu. |

Færslur (RSS)