Um mig.

Nei ég er ekki nafni minn Þorsteinsson og nei ég er ekki á leiðinni í framboð.

Ég er semsagt Alfred Júlíus Styrkársson, Garðbæingur, upprunalega úr vesturbæ Reykjavíkur en þó ekki KR’ingur. Bjó framan af ævinni á Reynimel og Holtsgötu, flutti síðan í Fossvoginn, aftur í vesturbæinn og enn aftur í Fossvoginn, nánar tiltekið í smáíbúðarhverfið. Þaðan í Kópavog (á meðan þar var enn gott að búa) en er semsagt kominn í jötu bláu handarinnar í Garðabæinn.

Fráskilinn og því einhleypur. Á eina dóttur, Alexöndru Ingu sem er í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ.

Menntun:

1991 Kerfisfræðingur TVÍ frá forvera Háskólans í Reykjavík.

1989 Stúdentspróf frá VÍ

1987 Verzlunarpróf frá VÍ

Starfsæfi:

2008- Tölvuþjónustan Eldborg – Eldborg consulting – http://www.eldborg.com

1990 – 2008 – 2008 Valitor.

2004 – 2008 Miracle (gagnagrunnssnillingarnir)

1999 – 2004 Teymi (hið fyrra) Oracle á Íslandi

1996 – 1999 Greiðslumiðlun VISA Ísland og RÁS þjónustan

1993 – 1996 Rafmagnsveita Reykjavíkur, nú Orkuveita Reykjavíkur

1990 – 1993 Launaskrifstofa ríkisins, nú kallað Ríkisbókhald

Fullt CV er að finna hér: Alfred Styrkarsson CV (á ensku)

Einnig er hægt að skoða mig á :

Facebook :   http://www.facebook.com/alfredjs

LinkedIn:  http://www.linkedin.com/astyrkarsson

Skilja eftir svar