Amnesty International
Amnesty International
Amnesty International

Staða fræðslustjóra í 100% starf

Íslandsdeild Amnesty International leitar eftir kraftmiklum og skapandi fræðslustjóra. Starfið heyrir undir framkvæmdastjóra deildarinnar.

Fræðslustjóri fylgir eftir stefnu Íslandsdeildar Amnesty International sem byggir á stefnu alþjóðasamtakanna. Fræðslustjóri ber ábyrgð á fræðslustefnu Íslandsdeildar Amnesty International og hefur umsjón með mannréttindafræðslu samtakanna og þróun hennar, þar með talið hönnun og útgáfa kennsluefnis um mannréttindi.

Fræðslustjóri á í samskiptum við menntastofnanir og aðra hagaðila í menntageiranum og ber ábyrgð á fjölmiðlasamskiptum og fréttatilkynningum tengdum fræðslustarfi. Hann ber ábyrð á og tekur þátt í viðburðum er tengjast fræðslustarfi. Fræðslustjór þar að eiga í samskiptum og samstarfi við aðrar deildir Amnesty International er varða mannréttindafræðslu.

Umsóknarfrestur er til 20.05.2024. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf eigi síðar en um miðjan ágúst 2024.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulag og umsjón með mannréttindafræðslu samtakanna 

  • Áætlunargerð og mat á fræðslustarfi 

  • Framleiðsla, markaðssetning og miðlun kennsluefnis í mannréttindum 

  • Samskipti við skóla, stofnanir, fyrirtæki, hópa og einstaklinga um fræðslu 

  • Skipulagning og miðlun fræðslu til starfsfólks og stjórnar Íslandsdeildarinnar 

  • Samskipti við fræðsluteymi innan alþjóðahreyfingarinnar 

  • Verkefnastjórnun þvert á stoðir innan Íslandsdeildarinnar 

  • Ýmis konar skrif, yfirlestur og þýðingar 

  • Önnur tilfallandi störf 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólagráða í kennslufræðum 

  • Þekking á menntamálum 

  • Reynsla af kennslu, skipulagningu fræðslu og framleiðslu kennsluefnis 

  • Skapandi sýn á kennsluhætti og kennsluefni 

  • Mikil skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi 

  • Leiðtogahæfileikar og sveigjanleiki í starfi 

  • Góð tölvukunnátta (t.d. í vefsíðugerð, gerð stafræns kennsluefnis og notkun samfélagsmiðla) 

  • Framúrskarandi færni í íslensku og ensku 

  • Áhugi á mannréttindamálum  

Fríðindi í starfi
  • Jákvætt og hvetjandi starfsumhverfi 

  • Sveigjanlegt, skapandi og ábyrgðarfullt starf 

  • Vinnustaður með 34 klukkustunda vinnuviku 

Auglýsing stofnuð9. maí 2024
Umsóknarfrestur20. maí 2024
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
EnskaEnskaMjög góð
Staðsetning
Þingholtsstræti 27, 101 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SamvinnaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Textagerð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar