Nova
Þann 1. desember 2007 opnaði Nova dyrnar að Stærsta skemmtistað í heimi - internetinu!
Síðan þá höfum við lagt ofur áherslu á að hlaupa hratt og vera fyrst með nýjungarnar. Við vorum fyrst allra íslenskra símafyrirtækja til að bjóða upp á 4G, 4.5G og nú síðast 5G.
Árið 2016 bætti Nova ljósleiðaraþjónustu í vöruframboð sitt sem byggir á kerfi Ljósleiðarans ehf. Ljósleiðari hjá Nova styður 1000 Mb/s hraða, sem er mesti hraði í heimatengingum á Íslandi. Aðeins það besta fyrir okkar fólk!
Nova hefur átt ánægðustu viðskiptavinina í farsímaþjónustu samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni sl. 15 ár sem er viðurkenning sem við erum einstaklega þakklát fyrir! Slíkum árangri væri ekki hægt að ná nema með besta liðinu en við leggjum okkur öll fram við það alla daga að skapa besta vinnustaðinn. Nova er skemmtilegur og sveigjanlegur vinnustaður, þar sem mikið er lagt upp úr sjálfstæðum vinnubrögðum, frumkvæði og kappsemi. Þó við segjum sjálf frá, þá er starfsfólk Nova sérlega skemmtilegt, liðsheildin góð og starfsandinn svífur í hæstu hæðum.
Við erum sérstaklega stolt, auðmjúk og þakklát fyrir það að hafa fengið nafnbótina Fyrirtæki ársins 2023, fjórða árið í röð, hlotið Jafnlaunavottun 2020-2023, fyrir að vera Markaðsfyrirtæki ársins 2020 á vegum ÍMARK og að eiga ánægðustu viðskiptavinina á farsímamarkaði 15. árið í röð.
Viltu dansa með okkur?
Séní í fjarskiptum
Viltu taka þátt í að breyta fjarskiptum á Íslandi og stuðla að framþróun?
Nova óskar eftir Séní í fjarskiptum til að starfa við farnetsdreifikerfi.
Nova rekur eitt stærsta og öflugasta 4G og 5G farnetkerfi á Íslandi. Meirihluti netnotkunar á farneti fer yfir fjarskiptakerfi Nova á hverju ári. Jafnframt rekur Nova sitt eigið burðarnetskerfi hringinn í kringum landið til að styða við framþróun og tækninýjungar Nova og viðskiptavina sinna. Nova er fremst á Íslandi þegar kemur að innleiðingu á nýrri tækni og þjónustu. Meðal annars er Nova eina fjarskiptafyrirtækið á Íslandi sem er að prófa nýja kynslóð 5.5G og jafnframt með þeim fyrstu í Evrópu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur í sér ýmis störf tengt 4G/5G kerfi Nova á landsvísu.
Plönun og hönnun á 4G/5G kerfi, staðarval, breytingar og viðbætur.
Greiningar á vandamálum og tækifærum til útbóta.
Úrvinnsla og framsetning gagna
Þátttaka í stefnumótun og verkefnum sem styðja við bestu þjónustu við viðskiptavini Nova.
Verkefni:
-
Þáttaka í uppbyggingu og rekstri fjarskiptakerfis Nova (4G/5G).
-
Hermun á dreifikerfinu, núverandi og það sem koma skal.
-
Þátttaka í útfösun á eldri tækni (2G/3G) .
-
Gagnaöflun, greining og túlkun stórra gagnasetta.
-
Eftirfylgni framkvæmda og breytinga.
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Háskólamenntun í fjarskiptum, tæknifræði, verkfræði eða tengdum greinum.
-
Reynsla úr fjarskiptaumhverfi.
-
Reynsla af gagnagreiningu og hönnunarforritum (Atoll eða sambærilegt) er kostur.
-
Grunnþekking á VBScript eða Python.
-
Þekking á SQL.
-
Færni í að leysa flókin vandamál á skýran hátt.
-
Skipulagsfærni.
-
Frumkvæði og góð samskiptafærni.
Auglýsing stofnuð6. maí 2024
Umsóknarfrestur19. maí 2024
Staðsetning
Lágmúli 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Software Developer - Platform Engineering
Controlant
Rafmagnshönnuður
Skaginn 3X ehf.
Sérfræðingur í skipatæknideild
Samgöngustofa
Máltækniforritari (NLP)
Snjallgögn
Sérfræðingur í gagnavísindum
Snjallgögn
Gagnaforritari / gagnaverkfræðingur
Snjallgögn
Systems Engineer
Össur
Hugbúnaðarsérfræðingur
TM
Hugbúnaðarsérfræðingur
Þjóðskrá
Sérfræðingur mæla og mælagagna
RARIK ohf.
Data Analyst
CCP Games
Umsjónarmaður rafmagnsöryggismála
HS Veitur hf