NPA miðstöðin
NPA miðstöðin
NPA miðstöðin

Reyndar aðstoðarkonur óskast

Ég er 55 ára gömul kona að leita mér að persónulegum aðstoðarkonum. Starfið felst í að aðstoða mig við öll þau verkefni sem ég tek mér fyrir hendur, en ég þarf aðstoð við allar athafnir daglegs lífs. (klæða mig, koma mér milli staða, eldhússtörf o.s.frv.). Í frítíma mínum hef ég gaman að útivist, fara í leikhús, göngutúra og ferðast.

Aðstoðarkonur mínar þurfa vera íslenskumælandi, með bílpróf, kunna að elda og baka og vera heilsuhraustar. Konur með reynslu af umönnunarstörfum sem eru tilbúnar til að vinna við persónulega aðstoð eru hvattar til að sækja um. Ég er með mikið kattaofnæmi og óþol fyrir sterkum ilmum vegna astma. Mikilvægt er þvi að aðstoðarkonur mínar séu ekki að umgangast ketti og séu ekki með sterkan ilm. Reynsla af sambærilegum störfum er kostur en ekki skilyrði. Í boði er bæði dag og kvöldvaktir og getur starfshlutfall verið sveigjnalegt.

Starfið byggir á hugmyndafræðinni um sjálfstætt líf, en hægt er að lesa nánar um hugmyndafræðina og notendastýrða persónulega aðstoð á npa.is

Laun eru samkvæmt kjarasamningi NPA miðstöðvarinnar og Eflingar.

Auglýsing stofnuð10. maí 2024
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálakunnátta
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Umönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar