Gallup
Starfsfólk Gallup býr yfir áratuga reynslu og þekkingu á sviði rannsókna sem gerir því kleift að velja þær rannsóknaraðferðir sem best eiga við hverju sinni.
Með eigin vöruþróun og samvinnu við erlend rannsóknarfyrirtæki getum við boðið staðlaðar eða sérhannaðar lausnir fyrir fyrirtæki og hagsmunasamtök af öllum stærðum og gerðum. Allar byggjast þessar lausnir á viðurkenndum rannsóknaraðferðum.
Starfsfólk Gallup leggur metnað sinn í að skilja umhverfi viðskiptavina sinna og veita þeim innsýn í hlutina, sem er grunnurinn að árangursríkum ákvörðunum.
Gallup fékk opinbera ISO vottun í júní 2004 og tekur ISO 9001 gæðastaðallinn til allrar starfsemi Gallup. Gallup leggur mikið upp úr trúnaði og öruggri meðferð persónuupplýsinga. Í allri framsetningu á niðurstöðum er þess gætt að ekki sé hægt að rekja svör til einstakra svarenda. Allir starfsmenn hafa skrifað undir trúnaðar- og þagnareið, sem á jafnt við gagnvart svarendum og viðskiptavinum. Við störfum einnig eftir ströngum siðareglum sem settar eru af alþjóðasamtökum markaðsrannsóknafyrirtækja ESOMAR. Við virðum þau lög sem Persónuvernd starfar eftir og setur um geymslu og meðferð persónuupplýsinga og tilkynnum Persónuvernd um þær kannanir sem lög kveða á um.
Gallup - Viðskiptastjóri
Gallup leitar að öflugum einstaklingi með brennandi áhuga á markaðsmálum og rannsóknum og ríka þjónustulund, í starf viðskiptastjóra á sviði Markaðsrannsókna Gallup. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í hópi reynslumikilla sérfræðinga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Öflun nýrra viðskiptavina og verkefna
- Þjónusta og samskipti við viðskiptavini Gallup
- Hönnun rannsókna
- Verkefnastjórn
- Kynning og ráðgjöf á grunni niðurstaðna úr könnunum, sem og önnur eftirfylgni
- Virk þátttaka í þróun á vörum og verkferlum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla/þekking á sviði markaðsmála er kostur
- Reynsla/þekking á sviði rannsókna er kostur
- Reynsla af verkefnastjórnun er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Metnaður og vönduð vinnubrögð
- Gagnrýnin hugsun, framsýni og frumkvæði
- Eiga auðvelt með að tala fyrir framan hóp
Auglýsing stofnuð25. mars 2024
Umsóknarfrestur30. apríl 2024
Staðsetning
Lyngháls 4, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Framkoma/FyrirlestarFrumkvæðiGagnagreiningMarkaðsrannsóknirMetnaðurMicrosoft ExcelSjálfstæð vinnubrögðVerkefnastjórnunVinnsla rannsóknargagnaViðskiptasamböndÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Stafrænn efnisstjóri
Bláa Lónið
Milwaukee sérfræðingur hjá Verkfærasölunni
Verkfærasalan ehf
Sölufulltrúi - Sumarstarf
Eirvík ehf.
A4 Hafnarfjörður – Besta sumarstarfið!
A4
Vörumerkjastjóri
Nathan & Olsen
Hlutastarf: Parket -og hreinlætistækjadeild
Húsasmiðjan
Sölu og þjónustufulltrúi í verslun
Ísleifur
Afgreiðsla í verslun
S4S
Hagfræðingur á skrifstofu skattamála
Fjármála og efnahagsráðuneytið
Viðskiptastjóri
Wise lausnir ehf.
A4 Selfoss – Skemmtilegasta sumarstarfið!
A4
Sölu- og þjónustufulltrúar í verslun Smáralind
Síminn