Deildarstjóri barnaverndar
Hafnarfjarðarbær óskar eftir að ráða deildarstjóra barnaverndar sem heyrir undir fjölskyldu- og barnamálasvið. Um fullt starf er að ræða.
Deildarstjóri barnaverndar er hluti af stjórnendateymi sviðsins og heyrir beint undir sviðsstjóra. Viðkomandi ber ábyrgð á því að fagleg vinnubrögð séu í starfi deildarinnar og tekur, ásamt öðrum stjórnendum, þátt í stefnumótun og innleiðingu nýjunga.
Á síðasta ári samþykkti Alþingi framkvæmdaáætlun í barnavernd 2023-2027 sem miðar að umfangsmikilli endurskoðun og úrbótum á þjónustu við börn. Næstu árin munu barnaverndarþjónustur sveitarfélaganna, mennta- og barnamálaráðuneytið og Barna- og fjölskyldustofa vinna samkvæmt áætluninni að aðgerðum í samstarfi við helstu aðila sem að þjónustunni koma. Þá verður áfram unnið að innleiðingu farsældarlaga innan sveitarfélagsins í samstarfi við mennta- og lýðheilsusvið sem og aðra hagaðila.
Hafnarfjarðarbær leggur áherslu á samstarf með heildarsýn að leiðarljósi sem og metnaðarfullt og faglegt starf í þágu bæjarbúa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á daglegum rekstri, áætlanagerð, mannaforráð og starfsemi deildarinnar
- Vinnur í samstarfi við deildir innan sviðsins og þvert á svið Hafnarfjarðarbæjar
- Þátttaka í fjárhagsáætlanagerð og ber ábyrgð á að rekstur deildarinnar sé innan fjárhagsáætlunar
- Þátttaka í stefnumótun sviðsins
- Leiðir starf barnaverndarteymis, úthlutar verkefnum og leggur mat á tilkynningar
- Ábyrgð á vinnslu barnaverndarmála og ákvörðun hvaða mál fara fyrir umdæmisráð
- Þátttaka í þróun og eflingu á þjónustuþáttum deildarinnar
- Hefur frumkvæði að og hvetur til þróunar nýrra úrræða til að mæta þörfum barna og fjölskyldna þeirra
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur viðkomandi
Menntunar- og hæfniskröfur:
- BS/BA próf sem nýtist í starfi
- Meistarapróf í félagsráðgjöf, sálfræði eða lögfræði eða mjög víðtæk starfs- og stjórnunarreynsla á sviði velferðarmála
- Reynsla af félagsþjónustu sveitarfélaga er æskileg
- Reynsla af barnaverndarstarfi er skilyrði
- Farsæl reynsla stjórnun mannauðs og rekstri
- Reynsla af þverfaglegu samstarfi og samstarfi stofnana
- Reynsla af þróun og innleiðingu nýrra ferla
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum og góð félagsleg færni
- Leiðtogafærni, frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Nánari upplýsingar veita Thelma Kristín Kvaran, ráðgjafi hjá Intellecta (thelma@intellecta.is) og Guðlaug Ósk Gísladóttir, sviðsstjóri fjölskyldu- og barnamálasviðs, gudlaugg@hafnarfjordur.is eða í síma 585-5500
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við BHM.
Umsóknarfrestur er til og með 29. apríl 2024.
Umsókn óskast fyllt út á www.hafnarfjordur.is og þarf henni að fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar um að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.