Aðstoðarmanneskja tannlæknis
Tannsetrið óskar eftir metnaðarfullum tanntækni / aðstoðarmanni tannlæknis í hlutastarf, ásamt því að vinna 1-2 helgar í mánuði á tannlæknavaktinni Tannhjálp.
Nánar um vinnutíma í skilaboðum.
Þarf helst að geta hafið störf strax á næstu dögum.
Mjög spennandi starf í boði. Tannsetrið er ný stofa, í mikilli uppbyggingu, sem stækkar með hverjum deginum.
Allar helstu tækninýjungar eru á stofunni, og er rík áhersla lögð á að bjóða upp á hágæða nútíma tannlæknaþjónustu.
Tannsetrið er leiðandi á NOONA tímabókunar appinu, en einnig höldum við úti neyðarvaktinni TANNHJÁLP, ásamt ýmsum öðrum mikilvægum þjónustum sem nánar er farið yfir í starfsviðtali.
Tannlæknar hjá Tannsetrinu eru 4, á jafn mörgum aðgerðarstólum.
Skemmtilegur vinnustaður á 4.hæð í Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi.
Áhugasamir geta einnig sent erindi á marteinn@tannsetrid.is.
Ekki missa af þessu einstaka tækifæri!